|
|
25.10.2006 18:13:13 / siggaböjs
God dag!
Jæja þá fer að styttast að Dúddalíus skelli sér til Parísar,
búin að kaupa mér kortabók og stúdera þetta allt saman, verður
gaman hlakka rosa til. Ætla að hafa það geðveikt kósý, oo get ekki
beðið á litlum kaffihúsum með hvítvínsglas og helst að borða sushi
eða eitthvað geðveikt gott mmm verður gaman! Svo er ég að fara í
viðtalið á laugardaginn verður spennandi að sjá hvernig mér gengur
að heilla þessa araba gæja! Reyni mitt besta er samt rosa erfitt að
komast inn svo er ekkert að gera mér of miklar vonir!!
Annars er ég ansi hress, mikið að gera í vinnunni, sérstaklega
þar sem heyrnalausu krakkarnir koma á hverjum degi og vilja gera
eitthvað og svo hinir krakkarnir líka svo ég er alveg í essinu mínu
að föndra eitthvað og spila risa twister með liðinu og ýmislegt
skemmtilegt. Rosa orkukrefjandi svona vinna en líka rosa gefandi,
mér finnst unglingstrákarnir rosa erfiðir oft er ekki alveg að ná
þeim stelpurnar eru fínar en er algjör Lúlli með strákana. En þetta
kemur allt saman, núna er ég á fullu að undirbúa íslenskt ball
blása blöðrur og sjóða sviðakjamma, verður sviðakjammaát keppni
lækkert namminamm!!! Alveg lækkert að horfa á kjammana í pottinum
með tennur og læti öjj bara, en hva maður verður að gera einhverja
vitleysu með þessa unglinga sjáum til hver vill vera með!!
En jæja best að halda sér við efnið og fara að vinna. Ég kem
heim með einn Piere var að djóka í ömmu að ég væri að fara
heimsækja franska gæjann minn og hún alveg missti sig, svo iss næ
mér í einn fransara og tek með heim til hennar held að kvennsa fái
áfall, hún heldur því alveg fram að ég fæli alla kalla og sé einum
of sjálfstæð og ákveðin hún er bara fyndin og æðisleg. Alveg
að missa sig í pæjufötunum úr kolaportinu fer btw þangað á hverjum
laugardegi og kaupir upp básana og missir sig!!
Segi nú ekki meir ætli ég sé ekki mjög lík henni hmmm!
En bið að heilsa í bili og krossið endilega fingur fyrir mér
fyrir Dubai og aröbunum hihihi!!
Knús og kossar Sigga Birna ;-)
»
18.10.2006 10:01:48 / siggaböjs
Jæja nú er ég alveg í kasti, ekki nóg að ég sé í algjöru prófi að
fara svona heim í nokkra mánuði, maður þarf alveg að vinna á
jákvæðninni og læra eitthvað nýtt og svona en nei nei þá er
Lúllalína farin að vinna með heyrnalausum og þar að segja þarf að
HALDA KJAFTI næstum allan daginn, mér finnst það æði en mikið
andsk...er erfitt að geta ekki tjáð sig. Ég ætla að fara á
táknmálsnámskeið, finnst þetta ekki hægt að geta ekki talað
táknmál, ég lærði eitthvað tákn með tali í danmörku en það er
ekkert eins og hérna, ja hérna ég er búin að vera alveg í kasti
síðustu viku og núna, sælar ef ég læri táknmál þá verð ég bara með
krampa í höndunum allan tímann!!
En já þetta er bara gaman, byrjaði þannig að einn heyrnalaus
strákur kom í félagsmiðstöðina og mín fór alveg á fullt og segja
honum að taka vini sína með og svona, fannst alveg frábært að hann
kom og jú jú eitthvað hefur honum litist á þetta því laxi kemur á
hverjum degi og með að minnsta kosti 2 eða 3 vini, tak skal du'ha!
Ég er búin að leyfa þeim að gera ýmislegt baka pönnsur og köku og
allskonar, en stundum er þetta svolítið erfitt þegar koma 6
heyrnalausir krakkar og einn ofvirkur og ræræræ og ég á fullu að
skrifa niður á pappír til að reyna að vera með, en mér finnst þetta
samt best, svo eru farnir að koma útlenskir krakkar líka ein frá
Portúgal og ein frá Afríku og pabbi og sonur frá Kína!
Ég er búin að vera að fá alla inn í félagsmiðstöðina, þau eru víst
búin að hlæja mikið og segja að þetta sé búið að breytast mikið
síðan ég kom, ég er náttúrlega bara dúddalíus kemur á óvart að
þetta gerist þegar ég kem!!
Ég er búin að vera að skreyta allt hérna í félagsmiðstöðinni, gera
einn vegg rosa flottann með myndum og speglum og allskonar skrauti
risa vegg og svo setja veggfóður á borð og ýmislegt, svo kannski er
ég búin að gera algjöran usla hérna, en held það sé bara fínt er að
vinna með 2 strákum sem eru ofur rólegir, svo ég litla jarðýtan fæ
alveg að njóta mín og stjórna öllu og gera allt.
En jamm svo ég bara hress, ætla að setja inn fullt af myndum í
vikunni á fullt af myndum síðan ég kom heim. Svo fer að styttast að
ég fari til Parísar sem verður æði, svo er Hafdís að koma um
helgina sem verður æði. En já Dúddalíus er hress, þarf að fara út
núna að skrá mig í táknmálsnámskeið og kaupa svona plakkat fyrir
táknmálstákn, er komin alveg í swing ætla að fara að æfa mig!!
Bið að heilsa í bili, ætla bruna af stað á Daisy minni!
Knús knús Lúllos ;-)
»
10.10.2006 10:15:55 / siggaböjs
God dag!
Jæja þá er aðeins hressast í kotinu, stundum er maður bara pirri
kall, ég dett eitthvað alltaf í eitthvað svona, æi samt mikil
breyting að koma úr dúddalífinu mínu í Köben og hraðann og
brjálæðið hérna á klakanum, enn iss fínt að prófa, ég held samt
bara áfram að lifa dúddalífi hætti því aldrei. Er annars bara
hress, bruna um allan bæinn á kagganum mínum og dúddast eitthvað,
nú er Lilja víst komin í Dúddahópinn aftur, flutt við hliðin á mér
svo nú verður bara sama gamla kollegi stemningin. Er búnar að finna
nýtt partý pleis hjá syss á Þórsgötunni, hún leigir þar með Alex
vini sínum sem er sænskur/indversku töffari. Nýtt húllumhæ hús, er
nú víst búin að halda nokkur sprell partý síðan ég kom heim hihi
með danskeppni og læti, hún á svona dansmottur frá Playstation. En
mér finnst ekkert gaman að fara í bæinn er búin að gera það einu
sinni og held ég ætlaði bara að panta mér göngugrind by air mail
takk fyrir, leið eins og versta ellismelli...er víst komin með
einhver ellli syndrom segir syss, er nú að nálgast þrítugt þá fær
maður víst alltaf svona, en halló það er bara ungt fólk á djamminu.
Fór samt aðeins á 101 síðustu helgi eftir eitthvað Tekinn partý
haha það var meiri vitleysan ég og Lilja álpuðumst í eitthvað
útgáfupartý með Dagný systir Anítu, hún er einhver stjóri hjá 365
og ákvað að taka útlendingana smá með sér út, einmitt við vorum
útlendingar við þekktum engan algjörir dúddar, þetta var fínt partý
ekki alveg eins og maður væri á biðlitsta eftir elliheimilisplássi,
en svo fórum við á þennan 101 og það var bara voða kósý!!
Svo ég fer að finna út úr þessu hérna, finnst samt bara
skemmtilegast að vera í heimahúsum ef ég ætla út. Æi svo finnst mér
líka svo gaman eins og ég geri oft úti bara hittast eftir vinnu á
bar og fá sér nokkra drykki og svo út að borða og svo halda bara
áfram, svona bara hygge chill elska það. Verð að komast í þennan
fílíng hérna.
Annars bara hress, nóg að gera í vinnunni, er svo dadara...búin að
kaupa mér miða til PArísar fór ekki til Edinborgar ákvað að sækja
um að fara frekar í viðtal í París hef aldrei farið þangað og ætla
að skella mér, fer í lok okt í fimm daga, verð hjá Tinnu og Bjarna,
sem verður bara æði, Tinna er ófrísk svo ég ætla að fara að dekra
við sætu mína.
Svo er ég líka búin að bóka fer í sólina um jólin, Johanna sænska
vinkona mín er guide á Kanarí svo dúddalíus ætlar að skella sér og
kannski eyða áramótunum í Köben!!
Svo jamm ég held bara áfram mínu dúddalífi, hver veit nema frúin
pikki einn frakka upp hihi...vinkona mín var að hlæja af mér og
segja það væri alveg týpiskt ég að finna einn í lestinni...hihi
sjáum til sakna samt svo danskra og sænskra gæja, veit ég er steikt
en samt þeir eru svo flottir, sakna svo að fara út úr húsi og
rekast á fullt af sætum gæjum, hér hmmm sé ekki neinn, allir
lokaðir inn í sínum bílum á fullri ferð ég reyni nú að blikka
einhverja á drossíunni minni ;-)
Jæja er hætt bulli, ætla að fara að kaupa í köku leyfa krökkunum að
baka í dag, bið að heilsa, Knús knús Lúllos!!!
»
27.09.2006 18:14:54 / siggaböjs
Jæja jæja þá heldur lífið áfram hérna á klakanum, alveg finnst
mér þetta skrítið að vera komin heim, þarf að taka smá pepp á
hverjum degi, það er ekkert grín að koma allt í einu heim í þetta
blessaða lífsgæðarkapphlaup og stress, vinnubrjálæðið og
að líða eins og elli smelli á djamminu, mér finnst þetta
rosalega mikil viðbrigði, ætli að maður sé ekki orðin of mikill
dani, veit ekki þetta tekur kannski bara smá tíma, hef oft heyrt að
þegar maður er að koma heim þá er þetta bara eins og þegar maður
flutti út oft erfitt fyrsta árið, en ég verð ekki svo lengi hérna
svo þetta hlýtur að koma allt hjá mér!!
Er bara alveg slow motion týpa ekki alveg að fitta inn í þennan
hraða, held að Hrabba skilji mig vel, hún sagði einmitt við mig að
mig myndi bregða rosalega að koma heim. En iss verð bara að taka
jákvæðnina á þetta þýðir ekkert annað, er nú að fara bráðum í open
day hjá flugfélagi í Dubai sjáum hvernig það gengur, ætla að skella
mér til Edinborgar og tékka á þessu.
Vinnan er fín, gaman að prófa að vinna með unglingum, er kannski
ekki alveg sú besta með þeim er náttúrlega bara Dúddi en reyni bara
að leika við þau og gera eitthvað skemmtilegt.
Mér finnst þetta bara smá erfitt þessa dagana að vera komin
svona heim svo ég hef ekkert mikið að segja frá, ég þarf að koma
mér í Lúlla gírinn, er samt alltaf að sprella eins og alltaf en
held að ég geti ekki dúddast jafn mikið hérna eins og í litla partý
endaraðhúsinu mínu, þarf að fá mér annað þegar ég kom út eftir
áramót ekki spurning, er nú búin að grafa upp ýmislegt outfit hjá
ömmu fyrir meira sprell í kofanum, gamlan glans galla og gular
hufur og trefla og ljotustu sko í heimi, á by the way endalaust af
fyndum fötum sem amma er alltaf að kaupa í Kolaportinu og mér
finnst alveg andsk skemmtilegt að klæða mig upp og Cille líka þegar
við erum komnar í glas, alveg heilbrigðar!
En já þetta kemur allt I hope, en útlandaskvísur ef þið ætlið
einhvern tíman heim þá belive me þetta er viðbrigði!
En núna ætlar Lúllos að vera jákvæður og fara i singstar með
unglingunum, er að vinna!
Hætt að vera Fúli, bið að heilsa í bili og Dúddi minn ég sakna
þín alveg rosalega hérna heima!!
Bið að heilsa í bili, Knús frá Skúla ;-)
»
20.09.2006 16:49:05 / siggaböjs
Sælar Sælar!!
Jæja best aðeins að fara að vekja þessa síðu frá dauðum held hún
sé alveg orðinn dauð og enginn lesi hana, en þar sem Hafdís
Dúddalíus er búin að biðja mig um að skrifa þá er best að ég byrji
aðeins aftur á þessu. Sjáum hve lengi ég endist! Er bara ekki alveg
sama Dúdda stemningin á mér og hjá mér í litla kofanum mínum úti.
Er heima á Íslandi núna í smá tíma, kofinn er seldur og sárt
saknaðs, ég held ég fari í hann aftur þegar ég kem út svo fínn
litli partý kofinn minn þar sem alltaf er glens og gaman.
En já ég er komin heim í hálft ár eða svo að vinna smá og gera
eitthvað af mér eins og alltaf. Ég held samt að ég eigi alveg eftir
að Dúddast jafn mikið hérna þarf bara aðeins að komast í gírinn,
finnst ég alveg out hérna allt of mikið stress fyrir litla Lúlla og
efnishyggja ekki alveg að ná þessu öllu. Ég keyri bara um borgina á
40 á litla golfinum hans Bjarna "græna slíminu", allir fara fram úr
og er alveg ekki að ná neinu hérna, er algjör jólasveinn systir mín
alveg í kasti yfir mér, held ég sé orðinn algjör dani dísess...
Úff er í vinnunni núna í ÍTR og ekki með neina stjórn, víst
búið að hækka í botn í græjunum..jæja jæja best að fara og hafa
einhverja stjórn.Einmitt Sigga Birna farin að vinna með unglingum
bið bara að heilsa, er alveg rosalega góð í því en skrifa meira
verð að fara að lækka aðeins í þessu sænska rapplagi!!
Skrifa aftur á morgun eða á eftir...Ræræræ bið að heilsa
Knús frá Lúlla
»
05.07.2006 22:35:50 / siggaböjs
Ég breytist greinilega aldrei, sælar sælar algjör dúddi búin að
skrifa smá inna á bloggið og erum um leið að downloada nýja disknum
frá Bob Sinclair og auðvitað lokaði ég blogginu og eyddi öllu kemur
á óvart dúddi! En veistu sólin gerir þetta ég er hreint út sagt að
kafna hérna eruð ekki að grínast í hita alveg komið gott, eða segi
það nú samt ekki elska hita en sæll það er ekki hægt að gera neitt
maður fer í sturtu og maður er strax í svitabaði á eftir!!
En já ekki leiðinlegt maður á að njóta þess því vá ég man sko
hve kaldur veturinn var!! En já ég hef það fínt, bráðum helgi með
Robbie framundan og tveimur leikjum í HM, vá hlakka ekkert smá til
að sjá final leikinn sæll verð mætt snemma á barinn!! En já konan
er hress, er búin að vera að downloada diskum tékkið á nýja Bob
Sinclair og Nelly Furtado góðir! En jæja setti inn myndir smá frá
Sviþjóð núna nenni ég ekki að skrifa aðra ritgerð og einhverja
þvælu! Skrifa frekar eftir robbie, lendi ábyggilega í einhverju
eins og alltaf!! Breyta til mmm...
Stór knús farin að lúlla, KNUS SIGGA
»
02.07.2006 22:46:49 / siggaböjs
Meiri Ljúfa lífið hérna hjá manni þessa dagna, eitthvað að ræða
þetta alveg geggjað!! Þvílíkur hiti og luksus, ég er alveg í
skýjunum, en samt kannski fyrir utan það að það er ekkert rosalega
létt að sofa í þessum hita, ætla að kaupa viftu a morgun ekki hægt
lengur held ég nú bara og svona svört gleraugu!!
En já hérna á bæ er takk fyrir hitabylgja og sól ekki
leiðinlegt. Svo það er bara farið á ströndina eða garða og farið í
sólbað og grillað!! Ooo elska svona líf, vona að sumarið verði
svona eins gott veturinn er búin að vera svo vondur!
En já Lúllí er bara hress, helgin búin að vera fín eða eiginlega
frábær, nema eitt kannski Brazil datt út sem ég var ekki sátt við
alveg fúlt!! En já var aðeins að vinna á laugardaginn, fylgdi
Steffen töffaranum (mongólíti sem ég passa) til Jótlands í lestinni
í sumarhús, alveg fyndinn gæi er að missa það langar svo í kærustu
að hann talar bara ekki um annað þessa dagana, er illilega að pæla
í að fara með hann á Istedgade og kaupa klámmynd eða eitthvað fyrir
hann!! Maðurinn er by the way 30 ára mesta krútt í heimi en halló
hann er svo graður og langar svo að hann veit stundum ekki hvað
hann á að gera án gríns, ég er búin að fara á allar rómantísku
myndirnar með hann í bíó sem voru sýndar allan mai og júni og hann
var alveg að missa sig og þess á milli talar hann um konur og
kynlíf og ég eitthvað í kasti á meðan. Fine að hafa mig sem
stuðning fyrir hann ég er bara í hláturkasti alltaf, alveg fyndinn
dúddi með aflitaða hárið og leðurjakka og dauðans sólgleraugu. En
það er voða gaman að passa hann fórum út að borða og í bíó og svo
stundum í garða í sólbað því honum finnst svo gaman að sjá dömur!!
Einmitt og hann er eins og flóðljós því hann er svo hvítur og svo
er hann alveg í minnstu nærunum, jesús ég fæ stundum kast. En já
gaman að þessu hann er bara krútt og ég ætla að tala um þetta við
mömmu hans tékka hvort ég ætti ekki að kaupa smá porno dót handa
gæjanum!!
En já svo fórum við skvísurnar til Malmö í partý hjá sænskri
vinkonu minni, sem var æði ekkert smá hressar píur og halló halló
eitthvað verið að tala um að íslenskar konur séu flottar en góðan
daginn ég held nú að sænskar toppi allt, mér leið á tímabili eins
og píu frá Búðardal Christ skvísurnar ertu ekki að grínast!! Svo
gaman að hitta þær allt annað en danskar píur þær voru svo opnar og
skemmtilegar ekkert snobb dæmi, algjör snilld. Líka alveg komin oft
með nóg af dönskum píum skal ég nú bara segja, snobbinu og
nískunni!!! En já við trölluðum þar langt fram eftir nóttu, fórum á
allskonar staði og dúdduðumst!!
Svo í dag er bara búið að vera í sólbaði og svo kom Bjöggi
vinur og Gústi í heimsókna alveg óvænt svo gaman að sjá þá, voru á
HM í Þýskalandi og kíktu á mig, við skelltum okkur á Islands Brygge
aðeins að sóla okkur sem var snilld ekkert smá mikið af fólki, hélt
strákarnir ætluðu að missa það yfir píunum, ekki oft þar sem þeir
liggja með svona mikið af flottum píum en Bjögga kallinum fannst of
lítið af berbrjósta píum, hann er náttúrlega bara snilld búin að
þekkja hann síðan ég var lítil, man alltaf af þegar ég var sjö var
ég svo skotin í honum, aðal töffarinn í KR, svo núna er kallinn
bara pabbi og læti, gaman að þessu og vinur hans líka pabbi! Ja
hérna ekki nóg með að vinkonur mans eru allar komnar með mann en
líka vinir manns, shitt gerist fljótt allt saman ekki alveg að ná
þessu öllu!
En já svo fórum við að grilla hjá Sædísi sem var æði, sátum öll
á teppi og höfðum það svo kósý en eftir hita er maður oft svo
þreyttur svo allir fóru snemma heim en ég fór að hitta strákana og
við fórum aðeins á Nyhavn í smá öllara!! Svo gaman að vera aðeins
með þeim, alltaf svo gaman að vera með strákum allt eitthvað svo
auðvelt og afslappað alveg nice!!
En já ég hendi inn fleirri myndum í vikunni, var ekki búin að
setja allar inn!!
Svo er það bara Robbie á föstudaginn og skemmtileg vika
framundan!
Bið að heilsa í bili farinn í háttinn vona að maður geti
sofnað!!
Stór Knús frá kofanum Sigga ;-)
»
29.06.2006 12:49:39 / siggaböjs
God dag!!
Já alveg verð ég að fara að herða mig, ég er bara búin að vera
vinna síðan ég kom heim frá Íslandi, alveg komin í fyndna vinnu í
sumar já hérna mikið búin að hlæja og skemmta mér. Er að vinna í
herrafatatbúð út á Kastrup Airport og alveg herrafatabúð fyrir
smekklausa eldri kalla, ja hérna meiri vitleysan alltaf á manni!
Fékk vinnu í Hugo Boss búðinni og byrjaði þar, en svo þurfti ég svo
snögglega að fara heim í jarðarför að þegar mín kom út aftur þá var
bossinn víst farinn í frí og eitthvað búið að breyta og frúin sett
í aðra búð. Og alveg var það fyndið ég mætti bara í vinnuna eftir
að ég kom út aftur klukkan sex um morguninn og stóð bara fyrir
framan Hugo Boss og beið en aldrei birtist neinn svo ég bara jæja
eitthvað skrítið svo ég fór í hina herrabúðina, þetta eru víst
þrjár búðir með sama eigandann, nema hvað þá er alveg fyndinn hommi
að vinna þar og einmitt með mascara og fínerí og veit bara ekki
neitt og ég eitthvað shittt vona að ég hafi ekki misst vinnuna, en
nema hvað svo finnur hann út úr því að ég eigi að fara í hina
búðina sem ég vissi engan vegin hvar var. Og ég eitthvað ekki alveg
að fara að mótmæla svo ég fæ bara lykla og leita af hinni búðinni!!
Og rærær ég finn búðina og opna og einmitt kunni núll fann ekki
ljósin og var alveg að dúddast, svo ég þurfti að fara í næstu búð
og biðja um hjálp svo kom gellan með vasaljós og ég eitthvað að
leita að ljósinu og alveg dúddast þarna, svo út með allar vörurnar
fyrir framan búðina og vissi einmitt hvernig ætti að raða þeim,
svona var þetta allt ég gat ekki annað en hlegið kunni ekkert!!
Svo glatað þegar maður lendir í svona aðstöðum og hvað þá með
fötin einmitt bið bara að heilsa, ljótustu föt gulur leddari og
eitthvað fínerí svo mín var alveg að missa það þarna, ekta ég eða
að fara að vinna í þessari blessuðu ababúð!!
En svo er ég bara svo hæst ánægð með þetta, búin að kynnnast
fullt af liði í búðunum í kring og víst búin að æsa einhverja píu í
búðinni ská á móti, hún er kærasta gæja sem vinnur í búðinni á móti
sem ég tala oft við svo núna þolir hún mig ekki því hún heldur að
ég sé að reyna við dúddann, alveg fæ morðaugu og allt, svo ekki nóg
að ég sé byrjuð að vinna í ababúð þá er ég búin að setja smá drama
í gang í þessu búðarþorpi, hva verður nú að krydda smá þetta allt!!
Iss ég ætla bara að halda áfram að tala við dúddann og sjáum hvað
gerist, iss piss sumar píur mega alveg slaka!!
En já svo ég er bara ánægð með þetta allt! Svo er ég líka alltaf
að passa litla mongóinn minn hann steffen, sem er önnur saga að
segja frá!!
En nú ætla ég að setja myndir inn áður en ég fer að blaðra meir
jesús gæti skrifað fimm síður núna er alveg í ham!!!
En ég skrifa meira í kvöld kannski eða á morgun!!
Stór Knús frá kofanum sem alltaf eitthvað er að gerast!!
Sigga
»
20.06.2006 23:01:27 / siggaböjs
Jæja Jæja Jæja!!!
Það er víst farið að lifna við í Húllumhæ Húsinu eða veit nú
ekki hvort ég get sagt lifna við er svo ógeðslega heitt að maður er
í hálfu móki. ER búin að vera heima í tíu daga vegna jarðarfarar og
sælar sælar þegar ég kom út rugl og ef maður er að opna of mikið
glugga þá koma þessar blessuðu elskur mýflugurnar og nammi bíta mig
náttúrlega út um allt. Svo núna þarf ég að byrja að taka þessar
blessuðu töflur og smyrja á mig kremum, hata svona mýbit!
En já ég ætla að setja inn fullt af myndum inn á morgun og
skrifa meira, ákvað bara áðan þegar ég var að hjóla heim frá bænum
var að horfa á leikinn að ég ætti kannski að byrja að blogga smá
aftur og segja einhverja fróðleiksmola eins og alltaf!!!
En já ég set inn photos á morgun og skrifa meir!! Ætla reyna að
koma mér í háttinn ef mér tekst það, alveg að kafna en samt betra
en rigning heima!!
Sendi knús frá kofanum, Sigga Birna ;-)
»
29.03.2006 22:23:15 / siggaböjs
Jæja jæja!!!
Meira hvað ég er lélegur bloggari þessa dagana!! Ekki alveg að
nenna þessu lengur, svo mmm held að ég taki mér smá pásu frá þessu
rugli í mér, alveg meira ruglið ég get verið að skrifa á þessa síðu
sælar sælar...var að lesa þetta um daginn!!
Ekki nóg með dönsku slettur og stafsetningar villur en þá allt í
einni runu og ekkert annað en dúdderí dúuu tal, en svona er ég
bara....og æi nenni ekki að vera þvæla þetta endalaust svo bloggið
verður sett á smá hold á næstunni!!
Annars er frúin bara mjög hress, Vorið er að koma jibbbiiii
elska það, farin að heyra fuglana syngja þegar ég vakna og allt að
spretta og bráðum fer maður að fara út í sandölum og pilsi jibbbi
elska það! Svo já er mjög hress og krossa fingur að það fari ekki
allt í einu að snjóa, komið gott með risa jakka og fjalla skó takk
fyrir alveg!!!
Ég er alltaf að vinna og æfa og dúddast eitthvað eins og
vanalega, er bæði að vinna með fatlaða og venjuleg börn sem er rosa
gaman! Svo er ég farin að æfa spinning sem er frábært, ég hjóla svo
mikið og finnst það svo skemmtilegt svo ákvað að prófa og finnst
það rosa gaman svo nú verður bara farið að æfa á fullu og gera
eitthvað skemmtilegt!!
Svo já allt gott að frétta, sumarið að koma og er komið í gott
skap! Lene norska vinkona mín er að koma um helgina og svo kemur
vinkona hennar á laugardeginum verður gaman ætlum að skemmta okkur
og gera fullt af skemmtilegum hlutum! Verður gaman hlakka svo til!
Dreg þær í einhverja vitleysuna eins og mér er lagið líkt!
En annars bið ég bara að heilsa í bili! Set ábyggilega myndir
inn annað slagið og skrifa eitthvað smá en er samt komin í smá pásu
frá þessu!
En já heyrumst síðar og pas godt på jer allesammen!!
Knus og kossar fra Húllumhæ Húsinu sem er að verða aftur ekta
Húllumhæ hús loksins að koma sumar þá lifnar allt hér í
kofanum!
KNUS KNUS
»
20.03.2006 20:46:53 / siggaböjs
Sælar Sælar...
Jæja segi nú bara loksins loksins er farið að sjá í sólina hérna
á norður heimskautinu mætti halda að ég væri stödd þar og búin að
vera þar síðustu mánuðina...án gríns var farin að sjá fyrir mér
frétt í mogganum "ung stúlka lést út af kulda á hjólinu sínu út á
Nörrebro" án gríns stundum er mér búið að vera svo kalt á hjólinu
að ég get ekki hreyft mig sælar ruglið og ekki einu sinni talað í
gemsann og þá er mikið sagt skal ég nú segja!!
Og annað svo þarf maður alltaf að vera svo upp dúðaður og er svo
eldrauður þegar maður kemur inn í hús mmm mesta að maður nenni að
fara í búðir að máta föt...einmitt í úlpu og peysu og lalalala og
svo eldrauður..geyma það alveg. Svo hi hi kannski er þetta bara
gott fyrir mig, no shopping hihi!!
Enda fór ég sátt í Mango í dag í sólinni varð að fara og
sumarfötin shæse eru kominn...uff ætla að bíða eftir að Íris komi
heim og gaman gaman kíkja í búðir!!
En já annars er ég hress, átti mjög fína helgi, fór í skírn hjá
Önnu danskri vinkonu minni og Kara, var verið að skíra litla
strákinn þeirra hann Óskar. Var rosa gaman, gaman að fara í svona
danska skírn allt öðruvísi en hjá okkur, svo fyndið danir eru svo
afslappaðir með allt. Það voru skírð 6 börn og presturinn bara voða
líbó eitthvað og fólk ekkert í sínu fínasta pússi bara chill á
þessu öllu voða fyndið! Svo var veislan voða skemmtileg, haldin í
litlum sal, risa borð þar sem var dekkuð borð og miðar hvar maður
átti að sitja svona eins og í brúðkaupi. Svo var sungið og ræður og
rosa matur og gaman gaman..auðvitað nóg af bjór og áfengi svo fólk
var ekkert að drífa sig heim. Svo jamm ég skemmti mér voða vel.
Mikkel bróðir Önnu sem ég fór með til Spánar eitt sumarið, (fór
einu sinni með Önnu vinkonu, Kara kærasta hennar og Mikkel
brodur í eitthvað risa sumarhús sem familiann þeirra
á rétt hjá Sevilla eitt sumarið). En já þetta var alveg
skrautleg ferð, og ég eiginlega mundi alls ekki eftir að hún hefði
verið svona skrautleg fyrr en hann fór að segja sögur frá mér og
allskonar liði. Kristur Sigríður segi nú ekki meir....einn daginn
vorum við bara á torginu í þessum litla bæ Competa og ákváðum að
hafa það kósýs og borða þar og vera bara svolítið lengi spila
bakkammon og svona(vorum oftast alltaf heima á kvöldin ekkert djamm
eða svoleiðis)...nema hvað auðvitað hittir frúin íslendinga kemur á
óvart í pínu litlum bæ upp á fjalli i middel of nowhere. Og
auðvitað var boðið þeim að sitja hjá okkur og fengið nokkrar
sangria könnur á borðið og jú jú farið að færast fjör í leikinn og
áður en þau vissu af...sem ég var búin að steingleyma þá var ég
víst búin að gera heljarins fest þarna bjóða öllum að setjast hjá
okkur, víst einhverju snarbiluðu nasista pari og ameríkuönum og
fíneri. Kristur kemur á óvart svaka fest og ég söng sólemío
hástöfum og rærærær...og svo endaði víst með því að þegar við vorum
að fara heim þá var ég víst búin að bjóða íslendingum bara að koma
með okkur í húsið og gista...voru 4 íslendingar tvö
pör einmitt, þau mundu nefnilega ekki var þau bjuggu...sæll
alveg ekta íslendingar og við á litum fiat uno og við vorum
4...Mikkel bróðir Önnu var alveg sáttur hann var edrú og þá nei nei
sagði ég bara hva...pláss í rúminu þínu!!
Svo endaði þetta víst með því að hann greyið neyddist til að
keyra þau heim og þau voru svo full og mundu einmitt ekkert hvar
það var og svo að koma ná í mig sem var víst búin að vekja hálfan
bæinn með söng!!!!
Ég segi bara pass....kristur hvað ég get verið klikkuð. Og þessa
sögu var hann að segja í skírninni við fjölskylduna og ég hlustaði
bara og lalala gat ekki annað en hlegið!
Svo jamm eitt sumar fer ég með 3 dönum í risa sumarhús og luksus
og geri allt vitlaust og annað sumarið til Tyrklands með
tyrkjaguddu, Cille og Laxa og algjör vitleysa hvað ætli maður geri
í sumar....segðu!!! Gaman af þessu!!
En já svo frúin er bara spræk, búin að taka allt hér í gegn í
kotuni, henda öllu drasli, breyta og gera svo smart,sælar hvað ég
hef safnað miklu dóti og drasli....svo um að gera að henda svo ég
geti farið að kaupa nýtt hi hi!
En jæja er hætt masi þarf að fara að vinna smá og undirbúa mig
fyrir viðtal!
Bið að heilsa í bili, Frúa Gúggalúggu biður að heilsa, KNUS
;-)
»
16.03.2006 22:38:02 / siggaböjs
Dúdderí dúddí dúuuu....
God dag, jamm búin að vera í smá pásu, leti pásu frá að blogga,
bara nennti ekki að skrifa einhverja þvælu og bara kíkja í
tölvuna!!
En já mætt aftur, var að setja inn smá myndir frá helginni sem
var alveg fyndinn!! Eiki mætti í heimsókn, kallinn var víst í
Amsterdam en leiddist víst eitthvað þar svo hann skellti sér bara
yfir. Einmitt hringdi í mig á föstudaginn og ég bara iss skelltu
þér bara yfir gerum eitthvað skemmtilegt! Og jú jú auðvitað skellti
hann sér yfir, vissi af stelpu partýi á laugardaginn og
svona...ekki hægt að sleppa því!! Svo jamm kallinn fór frá
Amsterdam sem átti víst að vera helgarferð og slökun yfir í ruglið
í Köben og vitleysu!!! Ekki spurning alltaf skemmtilegast hér!!
En já svo við sprelluðum mikið, hann kom föstudagskvöldið og þá
voru ég og Lenka vinkona að setja saman hillu heima hjá mér, alveg
fínar ég eitthvað mega lengi að lesa leiðbeiningarnar (einmitt
mubla frá Ikea með imba leiðbeiningum) og hún í gullskóm með lokka
og belti í stíl alveg vorum við fínar saman og að sötra rauðvín! En
það tókst, svo kom eiki og hélt að það væri svaka sprell og gaman
en þá var íbúðin eða þar að segja endaraðhúsið undirlagt í
allskonar drasli, keypti bæði hillu og kommóðu og ýmislegt...jú jú
var farið í Ikea í vikunni aðeins verið að breyta!!!
Svo greyið Eiki mátti skella sér einn á djammið...mmm kemur ekki
á óvart, þar sem ég meika oftast ekki meir en einn dag en hann mmm
spurning meikar marga daga bara það sé stuð!! Svo við sendum hann í
taxa í bæinn og hann rúllaði heim um morguninn!! Hann er náttúrlega
bara snillingur!!
Svo var laugardagskvöldið algjör snilld, partý hjá Sædísi, Nosa
og Eiki með öllum gellunum og þeir voru án gríns að missa það,
alltaf að taka myndir og videó af sérstaklega Írisi og Lenku,
greyið Íris losnaði svo ekki við Nosa ha ha var alveg að missa sig
vildi helst giftast á morgun!! En bara fyndið, fórum á rosalega
skemmtilegt djamm sem endaði með að Bleikos rúllaði heim um níu
leytið og ég vildi víst ekki opna fyrir honum, brá svo svakalega
hann var víst búin að banka lengi svo endaði með að hann bankaði á
rúðuna þá vaknaði ég og var ekkert að hafa fyrir því að opna
hurðina...nei nei kemur á óvart opnaði bara gluggann og leit á hann
og sá hve fullur hann var sagði þá bara "varstu að dópa...getur
bara verið úti og eitthvað bla" einmitt Sigga pædagog mætt á
svæðið!! Hann horfði bara á mig what og hélt ég væri að djóka ég
var alveg í móki kexrugluð þegar ég er vakin svona, svo hann
hugsaði okay fer á hotel en svo opnaði ég!! Svo núna heitir Bleikos
"Dópi Gluggason" hi hi!!
Hlógum mikið af þessu og eigum víst eftir að gera það því þetta
var mega fyndið!!! Meiri rugludallarnir!!
En já svo frábær rugl helgi, hann fór svo heim á mánudaginn, og
frá köben svo hann þurfti að kaupa sér nýjan farseðil einmitt, best
að setja okkur saman kemur ekki gott út úr því, ég alltaf með
þessar góðu hugmyndir og hann jú jú sammála!!
Eins gott að ég nái mér í mann sem hefur stóran STOPP hnapp á
sér annars fer allt í rugl held ég, hi hi!!
Annars er ég hress, búin að vera að vinna á skóldagaheimili
lengst lengst í burtu í aðal getthoi Köben og þá er ég að meina
getthó fékk að vita það í dag af pædagognum að þú gætir ekki komist
meira á botninn!! Svo jamm er frekar erftit að sjá svona og heyra,
þar að segja um að krakkar séu barnir og misnotaðir og ýmsilegt! En
þetta er það sem mér finnst spennandi og vill læra meir um en þetta
er erfitt að horfa upp á!!
Svo ég hef verið að vinna þar til sex á daginn bara svona í
afleysingum sem ég er mjög sátt við. Þarf bara að hjóla svolítið
langt, og í svona kulda sem er núna en lifi það af, kem mér í
form!
Svo jamm er bara hress og kát, nú nenni ég ekki að skrifa meir,
er að fara að klára að horfa á 2 seríu af Sex in the City er að
horfa á alla seríuna!!
Bið að heilsa í bili og myndirnar eru inn á Myndir!!
Knus og kossar frá skítakuldanum í Köben, Pési Pongó!!!
»
05.03.2006 21:50:11 / siggaböjs
Jæja þá er maður farin að hressast.
Komið fínt með þessar pestir takk fyrir. Svo jamm nenni ekki
meir en þetta er víst að ganga, fullt að fólki búið að vera lasið
lengi, svona er það þegar það er vetur og ískalt.
En er hress, búin að eiga fína helgi, Bjarni og Rakel og litla
Sara komu í heimsókn sem var voða gaman. Hef aldrei hitt hana
almennilega svo var kominn tími til kallinn er nú víst að fara að
gifta sig í sumar svo það var gaman að hitta hana og litlu skottuna
hennar. Ég var (kemur á óvart) sett í það að versla á Rakel föt,
Bjarni hringdi í mig og sagði að þau væru að koma til köben og jú
jú ég fór að hitta þau og versla með Rakel. Ég held oft að ég
ætti að fara að vinna við að shoppa fyrir fólk, veit ekki alveg
hvað það er en eitthvað geri ég þetta ansi oft og heppnast alltaf
vel...svo mmm ætti kannski að fara athuga það. Ætti að gera
eitthvað sniðugt með konur sem kunna ekki að versla föt og
svona...væri ekki vitlaust!!!
Svo já við hugguðum okkur saman elduðum okkur og fengum okkur í
glas og horfðum á Dalalíf....fann þá mynd algjör snilld! Svo gaman
að hafa þau í heimsókn. Svo lúllaði litla Sara hjá mér í nótt
algjört krútt, en vá svaf ekki mikið litla rassgattip og bangsinn
hennar voru ofan á mér næstum alla nótt og svo var maður vaktur
klukkan sjö...yesss eitthvað verð ég að æfa mig ef ég verð mamma
einn daginn...sælar klukkan sjö á sunnudegi..."ég er svöng"...ha ha
en algjört krútt og gaman að hafa hana og þau, elska að fá
gesti.
Svo í dag er ég búin að vera dunda mér með Anítu og Ibrahim syni
hennar í Ikea og í bíltúr um bæinn. Ákváðum að fara í
sunnudagsbíltúr um ríku hverfin hér og keyra Strandvejen sem er
rugl, risa hús og hallir. Ekkert sma gaman að sjá þetta, hef oft
keyrt þarna en finnst það alltaf jafn gaman og læt mig dreyma. Svo
fórum við í Ikea en við sem kemur aldrei fyrir náðum ekki að kaupa
svo mikið því við töluðum svo mikið saman eitthvað að diskutera
agalega mikið..jú kemur alltaf fyrir að ég tali mikið en að
það stoppi shopping þörfina mína uff þarf mikið til. Svo við ætlum
aftur í Ikea í vikunni hi hi...
En held kannski er eitthvað að gerast i shopping málum mínum því
ég er að lesa shopaholic bækurnar um píu sem er sjúk og alltaf að
skrifa bankaráðgjafa sínum bréf...kann ekki að pakka og er algjör
lúlli...og uff ég sé mig alveg þarna svo held ég ætti að lesa allar
þessar bækur er seria algjör snilld eftir Sophie Kinsella, Selma
vinkona lánaði mér þetta alveg með meiningu held ég hi hi...Svo
jamm frúin bara fer í Ikea og shoppar mmm...ekkert!!!
Annars er ekkert nýtt að gerast í vinnumálunum hjá mér, er bara
að sækja um og bíða eftir svörum og svona. Svo maður verður bara að
vera þolinmóður þýðir víst ekkert annað. Ætlaði alltaf að fara til
Amsterdam í svona open interview hjá The Emirates í
Dubai en svo datt það út í Amsterdam út af lítilli þáttöku og
eitthvað dæmi svo ég verð að bíða þangað til það verður hérna rétt
hjá.
Svo jamm Lúlli bara hress, þýðir ekkert annað þetta gengur allt,
tekur bara tíma að fá vinnu held ég bara, maður verður bara að
halda áfram og vera jákvæður þá gengur þetta allt saman!!
Jæja var að lána fyrstu seriu hjá Lenku grannanum mínum, hún er
víst komin með einhvern svaka franskan gæja sem vinnur í Thaiti og
var að senda henni alla seriuna af Lost, Sex in the City og
Desperates og læti...ekki amalegt, og er svo að fara til Thaiti í
næstu viku bið að heilsa ætti að fara læra fiff af henni er
svakaleg. Svo núna er það bara sex in the city og shopaholic bækur
svo ætti ég nú að verða betri manneskja..ný og breyttur Lúlli held
það bara...sjáum til!!
Bið að heilsa í bili, hafið það gott. Hyg hyg, KNUS SIGGA!!
»
28.02.2006 23:09:33 / siggaböjs
Sælar...ætlaði eitthvað að reyna að skrifa smá en heilinn er á
off hjá mér. Er eitthvað orðinn slöpp aftur, stuð!
Varð eitthvað voða slöpp áðan var á kaffihúsi með Viggu vinkonu
eftir vinnu út á Fredriksberg, svo þegar ætlaði ég að fara
hjóla heim þá varð mér illilega flökurt. Sælar ég bara uff verð að
halda út áður en ég kem heim og bið nú bara að heilsa var næstum
búin að æla bara strax á hjólinu, ég hata að þegar manni er flökurt
þá hugsar maður alltaf um mat og ég var bara að labba með hjólið
eitthvað í önduræfingum, einmitt til að slaka á. Hitti
svo Gurý skvísi á Fredriksberg með bumbuna sína og
það fékk mig alveg til að hugsa um annað en svo þegar frúin
fór upp í metro þá varð ég alveg kabút og fór út á 2 stöðvum og
hélt ég þyrfti að æla, var svo mikið að fólki að ég hugsaði shit
hvað heldur fólk um mig. Steikt...en tókst að halda í
mér þangað til ég kom í Örestad. ÞEtta hata ég oft þegar
maður er einn að burðast með dót og æi hjól og eitthvað og svo
þarf maður að æla, kemur ekki oft fyrir en samt og það
er enginn til að koma og knúsa mann og hjálpa manni...já þá finnst
mér þetta alveg glatað.
Úff vona ég lendi ekki í þessu ef ég einn daginn verð ófrísk,
sælar hata að fá ælupest. En jæja nóg um það...bara stundum geta
dagarnir verið alveg steiktir hjá manni og manni finnst allt
ömurlegt og langar bara til mömmu sinnar. Held ég þurfi að fara að
drífa mig smá heim til famíliunnar sakna þeirra og vina minna
auðvitað (Dúddos gleymi þér nú ekki)!
En bið að heilsa ætla að fara að hvíla mig, er alveg gúgaluggu
held ég nú bara, ætla að safna orku og verða hress! Bið að heilsa í
bili.
Knús knús Sigga
»
26.02.2006 22:30:00 / siggaböjs
Meira hvað maður getur orðið þreyttur eftir að mæta alla
daga vikunnar klukkan sjö á morgnana...sælar er bara búin að
vera herra Lúlli Lati um helgina og sofa mikið. Get samt kannski
ekkert kvartað miðað við Írisi hún greyið á að vera mætt klukkan
hálf sex á morgnan a í vinnuna á SAS hótelið, einmitt held ég myndi
aldrei meika það, ég er náttúrlega algjör B manneskja. En samt
hefur mér ekkert þótt þetta alveg svaklega erfitt ef maður fer að
sofa snemma sem ég hef sem betur fer gert því ég er svo búin á því
eftir æfingu og að hjóla heim. Svo æi fínt þá er maður líka búinn
snemma að vinna, en ég vinn bara svona fjórðu hverju viku svo ekki
svo slæmt.
Annars er ég hress, helgin búin að vera fín, voða afslappelsi og
hvíld og svo fór ég og Aníta í risa öskuballs eða eins og það er
kallað "festelavns fest" í gær á Nörrebro og fyndið þetta var risa
partý og allir voru í búningum, og besta af öllu var að Nosa vinur
Anítu var ekkert að segja okkur að þetta væri svoleiðis partý svo
við vorum alveg eins og lúllar þarna einu ekki í búningum,
eiginlega hálf fáránlegt. Svo fyndið partý, ætla einhvern tíman að
halda svona risa partý, svo var svona risa borð og þá hafa allir
komið með sér eina sterka flösku og bland svo það var endalaust
mikið af áfengi þarna og blandi sem allir höfðu bara komið með,
algjör snilld að gera svona!!
Já svo skelltum við okkur á djammið sem var bara fínt, hittum
fullt af íslenskum strákum sem vinna í Landsbankanum á Íslandi og í
Lúx, og við skemmtum okkur með þeim, var rosa gaman að hitta þá.
Allt annað en þessa blessuðu dani, bara ekta kallar ekkert svona
kellinga gæjar, alveg tók Aníta einn danskan gæjan í gegn og
sagði honum að danskir gæjar væru allt af miklar kellingar og
íslenskir karlmenn væru karlmenn og þeir gætu nú reynt að læra af
þeim. Veit það er kannski hægt að segja svona en ég er alveg
sammála henni, hún er nú búin að búa hér í 13 ár svo held hún hafi
prófað ýmislegt!! En já við skemmtum okkur bara rosa vel, vorum
eins og drottningar með þeim !!
Svo já fyndið er "Festelavns fest" í leikskólanum á morgun og
fyndið get nú verið algjör Lúlli oft. Ég mundi eitthvað eftir að
Kristín vinkona var í voða flottum búning á Halloween núna síðast
og bað hana um að fá lánaðan búninginn hennar. Og ´hún sagði bara
já auðvitað en skildi ekki alveg í mér því hún var víst HÓRA ha
ha..en hún var ekkert að segja mér það.
Svo í gær var ég í Fields og hitti Ágústu vinkonu hennar og
sagði "já ég ætla að lána búninginn hennar Kristínar fyrir
Festelavns Fest (öskudag) á leikskólanum og hún horfði bara á mig
"Sigga...halló hún var hóra með handjárn og svipu og alles...ha ha
einmitt ég hef greinilega ekki alveg munað rétt!!
En ég ákvað að fá bara hárkolluna og svo átti hún skikkju og
nornahatt svo já ég verð frekar NORN í staðinn fyrir HÓRU...held
betra annars verð ég ábyggilega beðin um að yfirgefa staðinn
fljótt...hihi!!
En svona er ég alltaf hugsa aldrei langt, veit ekki hvenær ég
fer að læra það! Annars já er ég bara að leita mér af vinnum og
sækja um og skoða! Krossa fingur við eina vinnuna aldeilis mikið en
sjáum vonandi gerist eitthvað spennó!
Jæja nú nenni ég ekki að skrifa meira, ætla fara að föndra norna
nef og finna föt og makeup fyrir morgundaginn...sælar með risa
hárkollu og hatt og skikkju...verð flott!!
Bið að heilsa í bili, eigið góðan mánudag!!
Knúsi Knús Sigga 8-)
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|